Þjónusta Fjarlækninga

Styttri leið til læknis með Fjarlækningum í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Fjarlækningar leysa algeng vandamál sem hægt er að leysa án skoðunar hjá lækni. Þannig er hægt að einfalda leiðina til læknis með öruggum hætti og stytta biðina eftir læknisþjónustu.

Hvar er þjónustan virk í dag?

Við opnum þjónustuna í samstarfi við heilbrigðisstofnanir, eina heilsugæslu í einu. Heilbrigðisstofnun Suðurlands er fyrsta stofnunin sem opnar fyrir þjónustuna.

Merki Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Fyrsta stofnunin sem opnar fyrir þjónustuna

Virk þjónusta

Heilsugæslan í Vestmannaeyjum

Fyrsta heilsugæslan til að opna.

Hvar fæ ég heimapróf?
  • Heilsugæslan í Vestmannaeyjum
    CRP-prófþvagprófstreptókokkapróf
Væntanlegt
  • Heilsugæslan á Selfossi
  • Heilsugæslan í Hveragerði
  • Heilsugæslan á Höfn í Hornafirði
  • Heilsugæslan á Kirkjubæjarklaustri
  • Heilsugæslan í Uppsveitum
  • Heilsugæsla Rangárþings
  • Heilsugæslan í Vík í Mýrdal
  • Heilsugæslan í Þorlákshöfn

Heilsugæslur merktar „væntanlegt“ opna fyrir þjónustuna í áföngum. Fleiri heilbrigðisstofnanir bætast við eftir því sem þjónustan þróast.

Algeng vandamál leyst með Fjarlækningum

Flest erindi afgreidd innan tveggja klukkustunda á opnunartíma.

Kvef, hósti og hálsbólga

CRP heimapróf notað í upplýsingasöfnun ef þarf. Alvarlegum einkennum vísað í annan farveg.

Þvagfæra- og leggangasýkingar

Þvag-stix heimapróf notað í upplýsingasöfnun. Sveppa- og bakteríusýkingar í leggöngum greindar og meðhöndlaðar. Alvarlegum einkennum vísað í annan farveg.

Getnaðarvörn

Fyrsta ávísun, endurnýjun eða breyting á getnaðarvörn.

Frjókornaofnæmi

Meðferð við árstíðabundnu ofnæmi.

Frunsa

Meðferð við endurtekna frunsu. Frumgreiningu vísað í annan farveg.

Ristill á húð

Meðferð við endurteknum ristli. Frumgreiningu vísað í annan farveg.

Risvandamál

Mat og meðferð.

Njálgur

Greining og meðferð.

Lyfjaendurnýjun

Skjót endurnýjun á föstum lyfjum sem þolir ekki bið.

Læknisvottorð

Veikindavottorð fyrir vinnu eða skóla, tengt vandamálum sem hafa verið sinnt í gegnum Fjarlækningar.

Listinn lengist jafnt og þétt eftir því sem þjónustan þróast.

Ferlið frá upphafi til enda

Allt ferlið er unnið í samstarfi við sérfræðilækna og lækna með áratuga reynslu á heilsugæslu. Spurningarlistar spegla þær spurningar sem læknir myndi spyrja sjúkling að en stóri munurinn er sá að hægt er að svara þessum spurningum hvar sem er. Læknir yfirfer og metur svo næstu skref út frá sínu læknisfræðilega mati.

  1. 1

    Þú velur erindi af vandamálalista

    Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum og farðu í viðeigandi ferli eftir einkennum.

  2. 2

    Þú svarar spurningalista

    Spurningalistar eru sérhannaðir í samstarfi við íslenska sérfræðilækna tengt hverju vandamáli — ferlið er hannað eins og viðtal við lækni. Þegar heimapróf bætir greiningu er þér leiðbeint að taka það, t.d. þvagpróf sem sækja má á heilsugæslu eða í næsta apóteki, og skrá niðurstöðuna beint í gáttina.

  3. 3

    Rauð flögg könnuð

    Rauð flögg (alvarleg einkenni) eru yfirfarin og þá er hægt að vísa því strax í réttan farveg innan heilbrigðiskerfisins.

  4. 4

    Læknir metur og leggur til meðferð

    Læknir fer yfir öll svörin og leggur til viðeigandi meðferð út frá sínu læknisfræðilega mati.

  5. 5

    Niðurstaða, ráðleggingar og lyfseðill

    Þú færð skriflega niðurstöðu og ráðleggingar, og lyfseðill fer rafrænt í lyfjagátt ef þörf er á, tilbúinn í næsta apóteki. Niðurstöðunni fylgir fræðsluefni tengt þínu vandamáli: ráðleggingar, fyrirbyggjandi ráð og vörur án lyfseðils sem geta hjálpað.

Heimapróf sem geta fylgt erindinu

Fyrir sum erindi bætir einfalt sjálfspróf matið á erindinu. Spurningarnar frá læknum Fjarlækninga gefa það í ljóst hvort heimapróf þurfi, en þetta á ekki við um öll erindi. Þú sækir sjálfsprófið sjálf/sjálfur, tekur það þar sem hentar og skráir niðurstöðuna inn.

CRP-próf

CRP-próf

Mælir bólgusvörun í blóði.

Á við um

Kvef, hósti og hálsbólga

Fæst hjá
Heilsugæsla
Þvagstix

Þvagstix

Skimar fyrir merkjum um þvagfærasýkingu.

Á við um

Þvagfæra- og leggangasýkingar - þvagfærasýking í fyrsta skipti

Fæst hjá
ApótekHeilsugæsla
Strep-próf

Strep-próf

Skimar fyrir streptókokkum í hálsi.

Á við um

Kvef, hósti og hálsbólga - hálsbólga, til að aðstoða greiningu

Fæst hjá
ApótekHeilsugæsla

Afhverju sjálfspróf?

Fyrir afmörkuð og algeng erindi getur einfalt próf, sem þú tekur sjálf eða sjálfur, gefið lækni þær upplýsingar sem upp á vantar til að ljúka matinu - án þess að þú þurfir að bóka tíma, ferðast og bíða. Þannig verður ferlið einfaldara og hraðara fyrir þig, og heilsugæslan getur einbeitt sér að flóknari erindum.

Þegar sjálfspróf bætir greiningu er þér leiðbeint að taka það, en niðurstaðan eykur greiningarnákvæmni. Prófið kemur þó ekki í stað mats læknis: læknir fer yfir niðurstöðuna ásamt svörunum þínum úr spurningalistanum. Sé niðurstaðan óljós, eða passi einkennin ekki við hana, er erindinu vísað í hefðbundna þjónustu.

Svona fer þetta fram í sjúklingagáttinni

  1. 1

    Spurningar gefa í ljós hvort þurfi sjálfspróf

    Þú velur erindi og svarar stöðluðum spurningum sem tekur nokkrar mínútur. Eigi sjálfspróf við um þitt erindi færðu skilaboð um hvaða próf það er, en á ekki við um öll erindi.

  2. 2

    Þú sækir sjálfsprófið - klárar þar sem hentar

    Þú getur sótt sjálfsprófið á þína heilsugæslu eða í apóteki - sjá hvar hentar best hér að ofan. Leiðbeiningar um hvernig það er tekið fylgir með í pakkanum og í sjúklingagáttinni.

  3. 3

    Þú skráir niðurstöðuna í sjúklingagáttina

    Þú skráir niðurstöðuna beint í sjúklingagáttina. Allar upplýsingar um erindið og prófið fara til læknis til yfirferðar, sem lýkur erindinu.

Ef þú hefur einhverjar spurningar er þér velkomið að hafa samband við okkur í tölvupósti á fjarlaekningar@fjarlaekningar.is.

Hvenær hentar fjarlækningaþjónusta ekki?

Fjarlækningar leysa einföld og afmörkuð erindi. Sum erindi þarfnast skoðunar, rannsóknar eða bráðaþjónustu og þeim er þá vísað í annan farveg.

Alvarleg einkenni

Alvarlegum einkennum er vísað í annan farveg.

Sjá dæmi um alvarleg einkenni

Alvarleg einkenni geta meðal annars verið:

  • Brjóstverkur eða þrýstingur fyrir brjósti
  • Öndunarerfiðleikar eða skyndileg andnauð
  • Skyndilegur máttminnkun, dofi, taltruflun eða lömun (einkenni heilablóðfalls)
  • Skert meðvitund eða yfirlið
  • Miklar blæðingar eða alvarlegir áverkar
  • Skyndilegur, óbærilegur höfuðverkur eða kviðverkur
  • Hár hiti með hnakkastífleika eða húðblæðingum
  • Alvarleg ofnæmisviðbrögð (bjúgur í andliti/hálsi, öndunarerfiðleikar)
  • Hugsanir um sjálfsskaða eða sjálfsvíg

Ef alvarleg einkenni eru til staðar getur þú:

  • Hringt í 1700 til að fá ráðgjöf hjúkrunarfræðings
  • Leitað á Læknavaktina (á höfuðborgarsvæðinu)
  • Ef málið þolir enga bið: farðu á Bráðamóttökuna eða hringdu í 112

Þörf á skoðun eða rannsókn

Þurfi sjúklingur skoðun eða frekari rannsókn vísar læknir aftur í hefðbundna þjónustu.

Frumgreining

Frumgreiningu tiltekinna vandamála er vísað í annan farveg. Frunsa og ristill á húð eru dæmi: fyrsta greining þarf mat læknis með skoðun, en endurtekin einkenni sem þú þekkir má afgreiða hér.

Alvarlegir sjúkdómar í sjúkrasögu

Ef sjúkrasaga sýnir alvarlega undirliggjandi sjúkdóma getur verið of áhættusamt að afgreiða erindið í gegnum fjarþjónustu - þá er vísað í hefðbundna þjónustu.

Í bráðatilfellum hringdu í 112.

Algengar spurningar

Þjónustan

Hvernig virkar læknisþjónustan?

Læknisþjónusta frá læknum Fjarlækninga er aðgengileg í gegnum heimasíðu Fjarlækninga, þar sem þér hentar. Þar færð þú meðferðarúrræði við skilgreindum, algengum vandamálum. Með Fjarlækningum færð þú þægilegri leið til læknis þar sem þú færð niðurstöðu læknis, og lyfseðil ef við á, innan 2 klukkustunda alla daga milli 10:00–22:00.

Þú ferð í gegnum ferli þar sem þú svarar stöðluðum spurningum læknis um þig og þína heilsu. Þegar þú hefur lokið við að svara spurningum greiðir þú sama og komugjald á heilsugæslu og erindi þitt fer áfram til læknis. Læknir Fjarlækninga veitir þér sérsniðið meðferðarúrræði og niðurstaðan þín birtist í sjúklingagáttinni þar sem þú getur nálgast meðferðarúrræði og skilaboð frá lækni. Ef greining gefur til kynna að þörf sé á uppáskrifuðu lyfi færð þú einnig sendan lyfseðil í lyfjagáttina sem hægt er að leysa út í næsta apóteki.

Hvaða læknisfræðilegu vandamál leysir þjónusta Fjarlækninga?

Fjarlækningar veita læknisþjónustu við eftirfarandi vandamálum:

  • Kvef, hósti og hálsbólgaEinfaldar öndunarfærasýkingar, hálsbólga, ennis- og kinnholusýkingar
  • Þvagfæra- og leggangasýkingarÞvagfærasýkingar kvenna, sveppasýkingar í leggöngum og bakteríusýkingar í leggöngum
  • Risvandamál
  • Frunsa (ekki frumgreining)
  • Ristill í húð (ekki frumgreining)
  • NjálgurLausn fyrir alla fjölskyldumeðlimi
  • Frjókornaofnæmi
  • LyfjaendurnýjanirÞjónustan gerir þér kleift að endurnýja lyf sem þú notar að staðaldri. Ekki er hægt að endurnýja öll lyf í gegnum þessa þjónustu — þú færð leiðbeiningar um hvaða lyf er ekki hægt að endurnýja þegar þú ferð í gegnum ferlið.
  • LæknisvottorðVeikindavottorð til vinnuveitanda og skóla. Þessi þjónusta er einungis í boði fyrir þá sem þurfa fjarvistarvottorð tengt vandamáli sem hefur verið afgreitt í gegnum fjarlækningaþjónustuna.
Hvað kostar læknisþjónusta Fjarlækninga?

Læknisþjónusta Fjarlækninga er sambærileg og koma á heilsugæslu, en þú greiðir einungis komugjald 1.000 kr. fyrir erindi líkt og á heilsugæslu. Gjald fyrir veikindavottorð er samkvæmt gjaldskrá heilsugæslunnar.

Fyrir hvern er þjónustan?

Læknisþjónustan er aðgengileg fyrir 18 ára og eldri sem eru með rafræn skilríki. Nánari upplýsingar um hvar þjónustan er aðgengileg má finna hér: https://www.fjarlaekningar.is/thjonusta

Hvernig get ég nýtt mér læknisþjónustuna?

Læknisþjónusta Fjarlækninga er aðgengileg í gegnum heimasíðu Fjarlækninga með því að smella á „sjúklingagátt“ og heimasíðu HSU: https://island.is/s/hsu

Tilbúin(n) að senda inn erindi?

Skráðu þig inn í sjúklingagáttina og veldu erindi. Einfalt, öruggt og flest erindi afgreidd innan tveggja klukkustunda á opnunartíma.

Meðan á tilraunaverkefninu stendur er þjónustan aðeins í boði fyrir skjólstæðinga sem eru skráðir hjá HSU.