Algeng erindi

Njálgur

Njálgur er algeng sníkjudýrasýking, einkum hjá börnum. Helsta einkennið er kláði við endaþarm sem er verstur á nóttunni og getur truflað svefn.

Smit berst auðveldlega innan heimilis og milli barna í leikskóla eða skóla, og því er yfirleitt mælt með að allir á heimilinu fái meðferð á sama tíma.

Hvað er hægt að leysa?

  • Lausn fyrir alla fjölskyldumeðlimi

Hvenær á þjónustan ekki við?

  • Einkenni sem hverfa ekki eftir meðferð.
  • Miklir kviðverkir, blóð í hægðum eða óútskýrt þyngdartap.
  • Þungun eða brjóstagjöf.

Almennar ráðleggingar

Njálgur er lítill, hvítur hringormur sem er algeng sýking hjá börnum og einnig fullorðnum einstaklingum.

Almennar ráðleggingar

Smit geta komið upp á stöðum þar sem mörg börn eru saman komin, t.d. í leikskóla eða skóla. Njálgur smitast auðveldlega til foreldra og aðstandenda.

Einkenni

Þriðjungur smita er einkennalaus.
Helsta einkenni er kláði við endaþarm sem ágerist á nóttunni.

Hætta er á því að ef einstaklingur klórar sér á nóttunni getur hann ert húðina og valdið húðsýkingu. Í sjaldgæfari tilfellum ef um marga orma er að ræða þá getur njálgssýking lýst sér sem minnkuð matarlyst, kviðverkir og ógleði.

Smitleiðir

Njálgur smitast þegar egg komast í snertingu við munn og þaðan ofan í maga. Eggin klekjast í meltingarvegi og ormar verpa svo eggjum á svæði við endaþarm, en þau berast svo með óhreinum höndum út í umhverfi á næsta einstakling.

Ráðleggingarnar hér að ofan eru almennar og koma ekki í stað læknisráðgjafar. Leitaðu til læknis ef einkenni versna eða ganga ekki yfir.

Athugaðu

Fjarlækningar leysa einföld og afmörkuð erindi. Sum erindi þarfnast skoðunar, rannsóknar eða bráðaþjónustu — og þeim er vísað í annan farveg. Í bráðatilfellum hringdu í 112.

Sendu inn erindi

Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum og svarar stuttum spurningalista. Læknir metur málið og leggur til meðferð.

Opna sjúklingagátt