Algeng erindi
Frjókornaofnæmi
Frjókornaofnæmi er árstíðabundið ofnæmi fyrir frjókornum, á Íslandi einkum frá grasi og trjám. Einkennin eru meðal annars hnerri, nefrennsli, stíflað nef, kláði í augum og þreyta.
Einkennin fylgja frjótímabilinu og geta haft veruleg áhrif á svefn, einbeitingu og daglegt líf þótt þau séu sjaldan hættuleg.
Hvenær á þjónustan ekki við?
- Öndunarerfiðleikar, andnauð eða versnandi astmi.
- Alvarleg ofnæmisviðbrögð, svo sem bjúgur í andliti eða hálsi.
- Ofnæmispróf, afnæming eða greining á nýju ofnæmi.
- Einkenni sem svara ekki ofnæmislyfjum.
Almennar ráðleggingar
Hér eru hagnýt ráð til að draga úr einkennum frjókornaofnæmis í daglegu lífi.
Helstu atriði
Góð ráð
- Loftaðu vel út og ryksugaðu reglulega.
- Farðu í sturtu og skiptu um föt þegar mikið er um frjókorn úti.
- Skiptu reglulega um koddaver.
- Þvoðu og þurrkaðu föt innandyra.
- Þurrkaðu af gæludýrum með blautum klút þegar þau koma inn.
Forðastu
- Forðastu garðyrkju (eða notaðu grímu/hlífðargleraugu).
- Ekki hafa fersk blóm inni á heimilinu.
- Takmarkaðu notkun á ilmvatni og rakspíra.
- Forðastu þvottaefni með ilmefnum.
Hreinlæti og rykstjórnun
Góð rykstjórnun heima getur skipt sköpum. Mikilvægt er að fjarlægja hluti sem draga í sig ryk, svo sem flísteppi, og íhuga notkun lofthreinsitækja ef einkenni eru mikil.
Gátlisti fyrir heimilið
Notkun ofnæmislyfja
Notaðu saltvatn til að skola nef og augu áður en þú notar ofnæmislyf.
Við skolun fjarlægjast frjókorn sem sitja í slímhúðinni.
Þegar búið er að hreinsa svæðið virka lyfin þín best.
Ráðleggingarnar hér að ofan eru almennar og koma ekki í stað læknisráðgjafar. Leitaðu til læknis ef einkenni versna eða ganga ekki yfir.
Athugaðu
Fjarlækningar leysa einföld og afmörkuð erindi. Sum erindi þarfnast skoðunar, rannsóknar eða bráðaþjónustu — og þeim er vísað í annan farveg. Í bráðatilfellum hringdu í 112.
Sendu inn erindi
Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum og svarar stuttum spurningalista. Læknir metur málið og leggur til meðferð.
Opna sjúklingagátt