Algeng erindi
Augnsýkingar og augnlokavandamál
Læknisfræðileg yfirferð:Guðbjartur Ólafsson, heimilislæknir og yfirlæknir Fjarlækninga
Roði, kláði og útferð úr augum eru meðal algengustu augnvandamála, og langflest þeirra eru væg og ganga yfir.
Hvarmabólga er bólga í augnlokabrúninni sem veldur roða, flögnun og skorpum, sérstaklega á morgnana. Hún er langvinn og kemur oft aftur. Vogrís og hvarmakýli eru hnútar á augnloki sem myndast þegar kirtill stíflast — vogrís er aumur og kemur snöggt, hvarmakýli er oftast verkjalaust og lengur að hverfa. Tárubólga er bólga í slímhúðinni sem þekur augnhvítuna og innra borð augnloksins, oftast af völdum veiru en stundum baktería eða ofnæmis.
Þessi vandamál eiga það sameiginlegt að sjást utan á auganu og að sjónin helst óbreytt. Versni sjónin, verki augað eða þolir þú illa ljós er málið annars eðlis og þarf skoðun.
Hvað er hægt að leysa?
- Hvarmabólga - roði, flögnun og skorpur á augnlokabrún
- Vogrís og hvarmakýli - hnútur á augnloki
- Óbrotin tárubólga - rautt auga með útferð, óbreyttri sjón og engum verk
- Þurrkur og erting í augum
Hvenær á þjónustan ekki við?
- Sjón sem hefur versnað eða orðið þokukennd.
- Verkur í auganu, ekki bara sviði eða aðskotatilfinning.
- Ljósfælni.
- Rautt auga hjá þeim sem nota augnlinsur - það þarf skoðun samdægurs.
- Áverki á auga, aðskotahlutur eða efni sem fór í augað.
- Blöðruútbrot á enni, augnloki eða nefbroddi.
- Auga sem stendur út, tvísýni eða skert augnhreyfing.
- Barn yngra en eins mánaðar með rautt auga eða útferð.
Almennar ráðleggingar
Hér eru almennar ráðleggingar við vægum augnvandamálum.
Heitir bakstrar
Baksturinn þarf að haldast heitur allan tímann. Kaldur bakstur gerir ekkert gagn.
Volgur þvottapoki eða bómullarpinni losar skorpur og opnar stíflaða kirtla.
Hvarmabólga og hvarmakýli taka vikur, ekki daga.
Hreinlæti og smitvarnir
Góð ráð
- Skolaðu útferð úr auganu með hreinu vatni eða saltvatni.
- Gervitár má nota eftir þörfum við þurrki og ertingu.
- Taktu linsurnar úr og notaðu gleraugu á meðan.
Varast skal
- Að kreista hnút á augnloki.
- Að nota augndropa sem einhver annar fékk ávísað.
- Að setja linsur aftur í áður en augað er orðið einkennalaust.
Rautt auga hjá linsunotanda getur verið sýking í hornhimnu og þarf skoðun samdægurs. Taktu linsurnar úr strax og hafðu samband við augnlækni eða Læknavaktina í 1700.
Ráðleggingarnar hér að ofan eru almennar og koma ekki í stað læknisráðgjafar. Leitaðu til læknis ef einkenni versna eða ganga ekki yfir.
Athugaðu
Fjarlækningar leysa einföld og afmörkuð erindi. Sum erindi þarfnast skoðunar, rannsóknar eða bráðaþjónustu og þeim er vísað í annan farveg. Í bráðatilfellum hringdu í 112.
Sendu inn erindi
Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum og svarar stuttum spurningalista. Læknir metur málið og leggur til meðferð.
Opna sjúklingagátt