Algeng erindi
Þvagfæra- og leggangasýkingar
Læknisfræðileg yfirferð:Guðbjartur Ólafsson, heimilislæknir og yfirlæknir Fjarlækninga
Þvagfærasýkingar eru algengar hjá konum og dæmigerð einkenni eru sviði við þvaglát, tíð þvaglát og aukin þvaglátsþörf.
Sýkingar í leggöngum (sveppasýking eða bakteríusýking) valda oftast kláða, ertingu og breyttri útferð. Einkennin eru ólík og meðferðin sömuleiðis, svo það skiptir máli að greina á milli.
Einkenni þvagfærasýkingar og sýkinga í leggöngum
- Sviði eða verkur við þvaglát
- Tíð þvaglát og skyndileg þvaglátsþörf
- Óþægindi eða þrýstingur neðarlega í kvið
- Skýjað eða illa lyktandi þvag, stundum blóð í þvagi
- Kláði og erting í og við leggöng
- Breytt útferð, hvít og kekkjótt við sveppasýkingu en þunn og illa lyktandi við bakteríusýkingu
Meðferð og lyf við þvagfærasýkingu
Einföld blöðrubólga hjá konum er oftast meðhöndluð með stuttum sýklalyfjakúr, yfirleitt í þrjá til fimm daga. Læknirinn velur lyfið út frá einkennum, niðurstöðu þvagprófs, ofnæmi og öðrum lyfjum sem þú notar, og lyfseðillinn fer rafrænt í lyfjagátt.
Sveppasýking í leggöngum er meðhöndluð með sveppalyfi, ýmist sem stíll, krem eða tafla. Bakteríusýking í leggöngum er meðhöndluð með öðrum lyfjum, og þess vegna skiptir máli að greina á milli.
Leitaðu strax til læknis ef þú færð hita, hroll eða verk í baki eða síðu. Það getur bent til þess að sýkingin hafi borist upp í nýrun.
Hvað er hægt að leysa?
- Þvagfærasýkingar kvenna, sveppasýkingar í leggöngum og bakteríusýkingar í leggöngum
Sjálfspróf
Þú sækir prófið á næsta afhendingarstað, tekur það þar sem þér hentar og skráir niðurstöðuna í sjúklingagáttina. Læknir metur niðurstöður með svörunum þínum.

Þvagpróf (stix)
Strimli er dýft í þvagsýni og reitirnir skipta um lit eftir því hvað finnst - hvít blóðkorn, blóð, nítrít eða prótein. Læknirinn notar niðurstöðuna við mat á erindinu.
Hvenær á þjónustan ekki við?
- Hiti, hrollur eða verkur í baki eða síðu.
- Þungun eða grunur um þungun.
- Endurteknar sýkingar eða einkenni sem svara ekki meðferð.
- Einkenni frá þvagfærum hjá körlum - þjónustan nær til þvagfærasýkinga kvenna.
Almennar ráðleggingar
Sveppasýking í leggöngum
Hér eru almennar ráðleggingar og fyrirbyggjandi ráð um sveppasýkingu í leggöngum.
Góð ráð
- Gæta að hreinlæti og halda kynfærasvæði þurru og hreinu.
- Leyfa svæðinu að anda með því að forðast þröngar buxur og nærbuxur.
- Draga úr neyslu á geri, áfengi, sykri og mjólkurvörum.
Varast ber
- Sterk ilmefni í sápum, snyrtivörum og tíðarvörum.
- Óvarið kynlíf með mismunandi einstaklingum.
- Sýklalyf geta raskað bakteríuflóru og gefið tækifæri fyrir sveppasýkingu.
Mikilvægt að hafa í huga
Vörur sem geta hjálpað
Notað til að fyrirbyggja endurteknar sýkingar. Stuðlar að heilbrigðri örveruflóru í meltingu og á kynfærasvæði.
Áhrifaríkt gel við sveppasýkingu og einkennum eins og kláða, ertingu og þykkri hvítri útferð. Styður við vöxt góðra Lactobacillus baktería.
Slær hratt á óþægindi og róar erta húð á kynfærasvæði.
Orðskýringar
Góðar bakteríur sem hjálpa til við að viðhalda réttu sýrustigi og heilbrigðri flóru í leggöngum.
Bakteríusýking í leggöngum
Hér eru almennar ráðleggingar og fyrirbyggjandi ráð um bakteríusýkingu í leggöngum til að stuðla að eðlilegu sýrustigi og góðri flóru.
Helstu ráð til að fyrirbyggja sýkingu
Hvað getur raskað jafnvæginu?
Ýmsir þættir geta haft áhrif á bakteríuflóru legganga og aukið líkur á sýkingu:
Góð ráð
- Nota vörur sem styðja við eðlilegt sýrustig.
- Gæta að hreinlæti án þess að nota sterka sápu.
- Nota smokkinn ef skipt er oft um bólfélaga.
Varast skal
- Sterk ilmefni í sápum, snyrtivörum og tíðarvörum.
- Óþarfa notkun á sýklalyfjum.
- Óvarið kynlíf með mörgum einstaklingum.
Vörur sem geta hjálpað
Dæmi um vörur sem fást í apótekum án lyfseðils.
Fyrirbyggir endurteknar sýkingar. Stuðlar að heilbrigðri flóru í meltingu og á kynfærasvæði.
Skeiðarkrem sem fyrirbyggir og meðhöndlar. Veitir sýkingavörn, kælingu og græðandi áhrif.
Fyrirbyggjandi og viðbótarmeðferð. Notað gegn bakteríu-, sveppa- og veirusýkingum.
Sérstakar aðstæður
Meðganga og hormónabreytingar geta aukið líkurnar á bakteríusýkingu. Einnig getur leggangaþurrkur stuðlað að ójafnvægi á örveruflóru legganga.
Orðskýringar
Safn náttúrulegra örvera sem lifa í leggöngum og verja þau gegn sýkingum.
Mælikvarði á hversu súrt eða basískt umhverfið er; leggöng þurfa að vera súr til að haldast heilbrigð.
Þvagfærasýking
Hér eru almennar ráðleggingar og fyrirbyggjandi ráð um þvagfærasýkingu.
Helstu ráðleggingar
Fyrirbyggjandi vörur og lyf án lyfseðils
Andoxunarefni sem kemur í veg fyrir að bakteríur festist við slímhúð blöðrunnar.
Stuðlar að heilbrigðri örveruflóru í meltingu og á kynfærasvæði kvenna.
Inniheldur estríól, veikt kvenhormón sem verkar staðbundið í leggöngum. Þegar estrógen minnkar þynnist slímhúðin, mjólkursýrugerlum fækkar og sýrustigið hækkar - þá eiga þarmabakteríur greiðari leið upp í þvagrásina. Ovestin byggir slímhúðina upp á ný svo súra vörnin skili sér. Notað daglega í 2–3 vikur og síðan tvisvar í viku; áhrifin koma smám saman á nokkrum vikum. Þetta er fyrirbyggjandi meðferð og kemur ekki í stað sýklalyfja við bráðri sýkingu.
Verkjastilling
Ef óþægindi í þvagblöðru eru mikil getur þú notað Ibuprofen 400 mg þrisvar á dag samhliða sýklalyfjameðferð.
Ráðfærðu þig við lækni ef þú ert óviss um lyfjanotkun.
Ekki nota Ibuprofen ef þú ert með:
Orðskýringar
Náttúrulegt kvenhormón (estrógen) sem hjálpar til við að viðhalda heilbrigðri slímhúð í leggöngum.
Safn náttúrulegra og gagnlegra baktería sem finnast í líkamanum.
Ráðleggingarnar hér að ofan eru almennar og koma ekki í stað læknisráðgjafar. Leitaðu til læknis ef einkenni versna eða ganga ekki yfir.
Algengar spurningar
Get ég fengið sýklalyf við þvagfærasýkingu án þess að mæta til læknis?
Já, ef um einfalda blöðrubólgu hjá konu er að ræða. Þú svarar spurningalista í sjúklingagáttinni, læknir metur einkennin og sendir lyfseðil rafrænt ef meðferð á við.
Hvað tekur langan tíma að losna við þvagfærasýkingu?
Einkennin lagast yfirleitt innan eins til tveggja sólarhringa eftir að meðferð hefst. Ef þau lagast ekki, eða versna, skaltu hafa samband við lækni.
Hvernig veit ég hvort þetta er þvagfærasýking eða sveppasýking?
Þvagfærasýking veldur yfirleitt sviða og tíðum þvaglátum en sveppasýking kláða og breyttri útferð. Einkennin geta skarast og þess vegna spyr læknirinn nánar og getur beðið um þvagpróf.
Hvað ef ég er ólétt?
Þvagfærasýking á meðgöngu þarf skoðun og eftirfylgd. Þá er þér vísað á heilsugæsluna eða í mæðravernd.
Er þjónustan líka fyrir karla?
Nei. Þvagfærasýking hjá körlum þarf nánara mat og skoðun og þá er vísað á heilsugæsluna.
Athugaðu
Fjarlækningar leysa einföld og afmörkuð erindi. Sum erindi þarfnast skoðunar, rannsóknar eða bráðaþjónustu og þeim er vísað í annan farveg. Í bráðatilfellum hringdu í 112.
Sendu inn erindi
Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum og svarar stuttum spurningalista. Læknir metur málið og leggur til meðferð.
Opna sjúklingagátt