Algeng erindi

Lyfjaendurnýjun

Læknisfræðileg yfirferð:Guðbjartur Ólafsson, heimilislæknir og yfirlæknir Fjarlækninga

Þessi þjónusta er fyrir endurnýjun á lyfjum sem þú hefur notað áður, og getur ekki beðið eftir hefðbundna lyfjaendurnýjun. Athugaðu að ekki er hægt að endurnýja öll lyf í gegnum þessa þjónustu.

Sum lyf krefjast reglulegrar eftirfylgni eða samtals við þann lækni sem ávísaði þeim upphaflega.

Hvenær á þjónustan ekki við?

  • Sum lyf krefjast reglulegrar eftirfylgni eða skoðunar hjá lækni, en þessi þjónusta kemur ekki í stað þess.
  • Fjölnota lyfseðlar - einungis er hægt að fá einfaldan lyfseðil.
  • Lyf sem flokkast sem ávanabindandi, örvandi eða geðlyf - við endurnýjun þeirra þarf að tala við lækninn sem hefur áður skrifað upp á þau fyrir þig.

Hér er listi yfir öll helstu lyf sem Fjarlækningar geta ekki endurnýjað:

A. Eftirritunarskyld lyf
Ópíóíðar / sterk verkjalyf
  • Morfín: Contalgin, Morfin
  • Oxýkódon: OxyContin, OxyNorm, Targin (oxýkódon + naloxon)
  • Ketóbemídón: Ketogan
  • Fentanýl-plástrar: Durogesic, Matrifen, Fentanyl
  • Tapentadól: Palexia
  • Petidín og metadon (sjá einnig flokk D)
  • Tramadól: Tradolan, Nobligan, Tramadol
Kódeín-samsett lyf
  • Parkódín / Parkódín forte (parasetamól + kódeín)
  • Kódímagnýl (asetýlsalisýlsýra + kódeín)
Benzódíazepín
  • Díazepam: Stesolid, Diazepam
  • Oxazepam: Sobril
  • Klónazepam: Rivotril
  • Alprazólam: Xanax, Tafil, Alprazolam
  • Lorazepam: Lorazepam, Temesta
  • Midazólam: Dormicum, Midazolam
Svefnlyf — Z-lyf (benzódíazepín-skyld)
  • Zópíklón: Imovane, Zopiclone, Imozop
  • Zolpidem: Stilnoct, Zolpidem
Örvandi lyf / ADHD-lyf
  • Metýlfenídat: Ritalin, Concerta, Medikinet, Equasym
  • Lísdexamfetamín: Elvanse
  • Dexamfetamín: Attentin
Gabapentínóíð
  • Pregabalín: Lyrica, Pregabalin
  • Gabapentín: Neurontin, Gabapentin
Barbitúröt
  • Fenóbarbital: Fenemal
B. Lyf við fíkn / viðhaldsmeðferð
  • Búprenorfín: Norspan (plástur), Subutex
  • Búprenorfín + naloxón: Suboxone
  • Metadon
  • Naltrexón / dísúlfíram: Antabus
C. Lyf sem þurfa eftirlit með blóðprufum
  • Warfarín: Kóvar, Marevan
  • Litíum
  • Klózapín: Leponex
  • Metótrexat
  • Ísótretínóín: Roaccutan
  • DOAC-blóðþynnar: Xarelto, Eliquis, Pradaxa
D. Lyf sem einungis sérfræðingar skrifa upp á
  • Geðrofslyf
  • Testósterón
  • Krabbameinslyf, ónæmisbælandi lyf og líftæknilyf

Athugið að þessi listi er ekki tæmandi.

Algengar spurningar

Hvaða lyf er hægt að endurnýja?

Lyf sem þú tekur að staðaldri og hefur fengið ávísað áður. Ávana- og fíknilyf, lyf sem þurfa reglubundið eftirlit með blóðprufum og lyf sem aðeins sérfræðingar ávísa eru ekki endurnýjuð hér.

Get ég fengið fjölnota lyfseðil?

Nei, aðeins einfaldan lyfseðil. Fjölnota lyfseðil færðu hjá heilsugæslunni þinni.

Hvað tekur endurnýjunin langan tíma?

Læknir svarar innan tveggja klukkustunda á opnunartíma, alla daga milli 10 og 22, og lyfseðillinn fer rafrænt í lyfjagátt.

Í hvaða apóteki sæki ég lyfið?

Í hvaða apóteki sem er. Lyfseðillinn er í lyfjagáttinni og apótekið finnur hann þar.

Get ég fengið endurnýjun á lyfjum í lyfjarúllu?

Nei. Skömmtuð lyf eru afgreidd eftir skömmtunarkorti sem læknirinn þinn heldur utan um og breytingar fara í gegnum hann.

Athugaðu

Fjarlækningar leysa einföld og afmörkuð erindi. Sum erindi þarfnast skoðunar, rannsóknar eða bráðaþjónustu og þeim er vísað í annan farveg. Í bráðatilfellum hringdu í 112.

Sendu inn erindi

Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum og svarar stuttum spurningalista. Læknir metur málið og leggur til meðferð.

Opna sjúklingagátt