Algeng erindi
Risvandamál
Risvandamál eru algengari en margir gera ráð fyrir og verða algengari með hækkandi aldri. Orsakirnar geta verið líkamlegar — svo sem æða- og efnaskiptasjúkdómar eða lyf — eða tengst álagi, svefni og andlegri líðan.
Risvandamál geta einnig verið fyrsta vísbendingin um undirliggjandi hjarta- og æðasjúkdóm og því er rétt að taka þau alvarlega fremur en að bíða.
Hvenær á þjónustan ekki við?
- Verkur, aflögun eða langvarandi sársaukafull stinning.
- Einkenni sem koma fram skyndilega eða eftir áverka.
- Þörf á blóðprufum eða skoðun áður en meðferð er valin.
Almennar ráðleggingar
Risvandi er algengt vandamál og um helmingur af körlum á aldrinum 40 til 70 ára lenda í vandræðum með stinningu á einhverjum tímapunkti yfir ævina.
Algengar orsakir risvanda
Margir þættir geta haft áhrif á stinningu, bæði líkamlegir og sálfélagslegir.
Meðferð og næstu skref
Gagnlegt ef orsakir eru sálrænar eða tengjast samskiptum.
Ræddu við lækninn þinn hvort núverandi lyf gætu verið að valda vandanum.
Draga úr áfengisneyslu og hætta reykingum.
Stinningarlyf eins og t.d. Sildenafil (Viagra) geta hjálpað mörgum.
Hvenær á að leita aðstoðar?
Ef engin augljós skýring er á vandamálinu er rétt að leita til þvagfærasérfræðings.
Ef þú vilt ræða möguleika á lyfjameðferð eða breytingar á núverandi lyfjum.
Ráðleggingarnar hér að ofan eru almennar og koma ekki í stað læknisráðgjafar. Leitaðu til læknis ef einkenni versna eða ganga ekki yfir.
Athugaðu
Fjarlækningar leysa einföld og afmörkuð erindi. Sum erindi þarfnast skoðunar, rannsóknar eða bráðaþjónustu — og þeim er vísað í annan farveg. Í bráðatilfellum hringdu í 112.
Sendu inn erindi
Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum og svarar stuttum spurningalista. Læknir metur málið og leggur til meðferð.
Opna sjúklingagátt