Algeng erindi
Frunsa
Frunsa (áblástur) stafar af herpes simplex veiru sem liggur í dvala í líkamanum eftir fyrstu sýkingu. Hún blossar upp aftur við álag, sólarljós, tíðahring eða aðrar sýkingar.
Einkennin byrja oft á sviða eða kláða áður en litlar blöðrur koma fram, oftast á eða við vör. Meðferð gagnast mest ef hún hefst strax við fyrstu einkenni.
Hvenær á þjónustan ekki við?
- Frumgreining — fyrsta greining þarf mat læknis með skoðun. Endurtekin einkenni sem þú þekkir má afgreiða hér.
- Sár eða einkenni nálægt auga.
- Útbreidd sár eða merki um að sýking sé að versna.
Almennar ráðleggingar
Frunsa (áblástur) er algeng veirusýking sem lýsir sér sem vökvafylltar blöðrur, oftast á eða við varir.
Hvað er frunsa?
Frunsa er af völdum herpes simplex veirunnar. Veiran dvelur í líkamanum alla ævi eftir smit og getur brotist út þegar ónæmiskerfið er undir álagi, svo sem við aðrar sýkingar eða streitu. Einkenni byrja oft með kláða eða eymslum degi áður en blöðrurnar myndast.
Góð ráð
- Þvo hendur reglulega með sápu ef þú snertir frunsuna
- Nota sólarvörn á frunsuna ef þú ert úti í sól
- Borða holla fæðu, hreyfa sig og sofa vel til að styrkja ónæmiskerfið
Varast skal
- Ekki kroppa í sárin, láttu þau gróa í friði
- Forðast að deila mataráhöldum eða kyssa aðra á meðan smitgluggi er opinn
- Forðast súra ávexti (t.d. sítrónu) og saltan mat sem getur ert sárin
Verkjastilling við óþægindum
Athugið: Ef þú ert með hjartabilun, nýrnabilun, bakflæði eða magasár er ekki ráðlagt að nota bólgueyðandi lyf eins og Ibuprofen.
Meðferð og smitvarnir
Við fyrstu merki (kláða eða eymsli). Hægt er að kaupa lyf án lyfseðils í apóteki. Bestur árangur næst innan 3 sólarhringa.
Á meðan sár eru til staðar. Varist að kyssa eða knúsa nýbura þar sem þeir eru mjög viðkvæmir fyrir herpes sýkingum.
Orðskýringar
Annað heiti yfir frunsu eða herpes sýkingu á vörum.
Tímabilið frá því að fyrstu einkenni koma þar til sár hafa lokast með hrúðri.
Ráðleggingarnar hér að ofan eru almennar og koma ekki í stað læknisráðgjafar. Leitaðu til læknis ef einkenni versna eða ganga ekki yfir.
Athugaðu
Fjarlækningar leysa einföld og afmörkuð erindi. Sum erindi þarfnast skoðunar, rannsóknar eða bráðaþjónustu — og þeim er vísað í annan farveg. Í bráðatilfellum hringdu í 112.
Sendu inn erindi
Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum og svarar stuttum spurningalista. Læknir metur málið og leggur til meðferð.
Opna sjúklingagátt