Algeng erindi
Læknisvottorð
Læknisfræðileg yfirferð:Guðbjartur Ólafsson, heimilislæknir og yfirlæknir Fjarlækninga
Veikindavottorð staðfestir að þú hafir verið óvinnufær eða fjarverandi vegna veikinda. Vinnuveitendur og skólar óska oft eftir vottorði eftir tiltekinn fjölda veikindadaga.
Vottorð er gefið út í tengslum við erindi sem hefur verið afgreitt í gegnum þjónustuna, enda byggir það á mati læknis á veikindunum sjálfum.
Hvað er hægt að leysa?
- Veikindavottorð til vinnuveitanda og skóla, tengt vandamáli sem hefur verið afgreitt í gegnum fjarlækningaþjónustuna
Hvenær á þjónustan ekki við?
- Veikindavottorð vegna erinda sem hafa ekki verið afgreidd í gegnum þessa þjónustu.
- Ökuvottorð.
- Sjúkradagpeningavottorð.
- Örorkuvottorð.
- Endurhæfingarvottorð.
- Önnur vottorð sem tengjast ekki erindi sem afgreitt hefur verið hjá Fjarlækningum.
Athugaðu
Fjarlækningar leysa einföld og afmörkuð erindi. Sum erindi þarfnast skoðunar, rannsóknar eða bráðaþjónustu og þeim er vísað í annan farveg. Í bráðatilfellum hringdu í 112.
Sendu inn erindi
Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum og svarar stuttum spurningalista. Læknir metur málið og leggur til meðferð.
Opna sjúklingagátt