Stofnað af læknum og unnið í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Fjarlækningar er íslenskt fyrirtæki og fjarheilbrigðisþjónusta sem var stofnuð árið 2021 af læknum sem hafa ástríðu fyrir því að auðvelda aðgengi fólks að læknisþjónustu. Í dag starfa Fjarlækningar í samstarfi við HSU.
Teymið á bakvið Fjarlækningar
Við erum teymi lækna og sérfræðinga með reynslu víða innan heilbrigðiskerfisins, sem hefur ástríðu fyrir því að finna nýjar leiðir til þess að bæta heilbrigðiskerfið.

Auk hóps starfandi lækna sem afgreiða erindi í sjúklingagáttinni sem og annarra sérfræðinga sem koma að Fjarlækningum.
Gildin okkar
Aðgengi
Læknisþjónusta á að vera einföld og aðgengileg fyrir alla.
Einfaldleiki
Þjónusta Fjarlækninga á að vera auðveld í notkun og við leggjum mikið upp úr því að hún sé skilvirk og svar læknis komi innan skamms tíma.
Fagmennska
Við fylgjum faglegum stöðlum og klínískum leiðbeiningum.
Öryggi
Persónuvernd og örugg meðhöndlun heilsufarsupplýsinga eru forgangsmál Fjarlækninga.
Hlutverk okkar
Fjarlækningar var stofnað af teymi lækna árið 2021 með það að markmiði að auðvelda aðgengi fólks að læknisþjónustu um land allt með öruggum stafrænum lausnum.
Örugg sjúklingagátt
Sjúklingagátt Fjarlækninga er íslensk og er búin til með ítrustu öryggis og gæðakröfum. Öll samskipti eru dulkóðuð og eingöngu aðgengileg fyrir skjólstæðing og lækni.
Faglegir og reyndir læknar
Læknar Fjarlækninga eru reynslumiklir og með full réttindi. Ef rautt flagg kemur í spurningarlistum er skjólstæðingum vísað í réttan farveg innan heilbrigðiskerfisins.
Lyfseðill og eftirfylgni
Læknir leggur til meðferð útfrá svörum skjólstæðings og ef lyfseðli er ávísað þá kemur hann beint í rafræna lyfjagátt þar sem er hægt að nálgast hann í næsta apóteki.