Íslensk fjarheilbrigðisþjónusta

Læknisþjónusta þar sem þér hentar

Fjarlækningar er íslensk fjarheilbrigðisþjónusta þróuð af læknum til að einfalda aðgengi að læknisþjónustu. Mörg algeng og afmörkuð heilsufarsvandamál má meta og afgreiða án þess að mæta á læknastofu. Þú sendir inn erindi á öruggan og einfaldan hátt og færð úrlausn frá lækni þegar það á við.

Svar innan tveggja klukkustundaOpið alla daga milli 10:00-22:00Óháð staðsetningu
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Fjarlækningar & HSU

Í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) er fyrsti opinberi samstarfsaðili Fjarlækninga. Samstarfið er eins árs tilraunaverkefni sem hefur það að markmiði að bæta aðgengi, stytta biðtíma og skapa meira svigrúm fyrir flóknari erindi. Þjónustan verður fyrst um sinn í boði fyrir skjólstæðinga heilsugæslunnar í Vestmannaeyjum, en stefnt er að því að útvíkka hana til annarra heilsugæslustöðva HSU á næstunni.

Þjónustan er nú aðeins í boði fyrir skjólstæðinga HSU í Vestmannaeyjum.

Hvar er þjónustan virk?

Algeng heilsufarsvandamál leyst innan tveggja klukkustunda

Mörg algeng og afmörkuð heilsufarsvandamál er hægt að meta og afgreiða án þess að mæta á læknastofu. Með Fjarlækningum getur þú sent inn erindi á öruggan og einfaldan hátt og fengið úrlausn frá lækni þegar það á við.

Listinn lengist jafnt og þétt eftir því sem þjónustan þróast. Sjá alla þjónustu.

Ferlið frá upphafi til enda

Þú svarar sérhæfðum spurningalista þar sem þú ert staddur/stödd og læknir svarar þér innan tveggja klukkustunda á opnunartíma milli 10:00-22:00.

  1. 1Þú velur erindi/vandamál af lista
  2. 2Svarar stöðluðum spurningum
  3. 3Alvarlegum einkennum beint í réttan farveg
  4. 4Læknir yfirfer og leggur til meðferð og næstu skref
  5. 5Niðurstaða, ráðleggingar og lyfseðlill ef við á
Sjá hvernig þjónustan virkar

Aukið aðgengi og styttri biðlistar með Fjarlækningum

Hægt er að sækja þjónustuna hvar sem er og fá úrlausn innan skamms tíma.

Tvær klukkustundir

Flest erindi afgreidd innan tveggja klukkustunda á opnunartíma.

Engin ferðalög

Þjónustan er aðgengileg í gegnum síma, spjaldtölvur og tölvu sem þýða engin ferðalög til læknis - læknir þar sem þú ert.

Opið alla daga

Opið alla daga frá 10:00-22:00 og erindum sem koma eftir 22:00 er svarað dagin eftir.

Alvarleg einkenni fá strax leiðbeiningar um rétt úrræði.

Teymið á bakvið Fjarlækningar

Tæknin einfaldar leiðina að lækninum, en skjólstæðingar eru alltaf í forgrunni. Hjá Fjarlækningum er hvert erindi metið af lækni með áherslu á fagmennsku, öryggi og persónulega þjónustu.

Kynnast teyminu
Teymi Fjarlækninga
Fréttabréf

Fylgstu með því sem er að gerast

Fáðu fréttir af Fjarlækningum, nýju samstarfi við heilsugæslur um land allt og nýrri þjónustu þegar hún bætist við. Engin læknisfræðileg ráðgjöf — bara fréttir, sjaldan og stutt.

Með því að skrá þig samþykkir þú að fá tölvupóst frá Fjarlækningum ehf. um fréttir, nýtt samstarf og nýja þjónustu. Þú getur afskráð þig hvenær sem er með einum smelli.

Tilbúin(n) að senda inn erindi?

Skráðu þig inn í sjúklingagáttina og veldu erindi. Einfalt, öruggt og öll erindi afgreidd innan tveggja klukkustunda á opnunartíma mill 10:00-22:00.

Á meðan á tilraunaverkefninu stendur er þjónustan aðeins í boði fyrir skjólstæðinga sem eru skráðir hjá HSU í Vestmannaeyjum.