Nú einnig í Rangárþingi

Frétt ·

Fjarlækningar opna í Rangárþingi

Frá og með 17. nóvember 2026 geta skjólstæðingar Heilsugæslu Rangárþings sent erindi til læknis í gegnum Fjarlækningar.

Útlínukort af Íslandi þar sem Rangárþing er merkt.

Heilsugæsla Rangárþings er þriðja heilsugæslustöð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) sem býður upp á Fjarlækningar. Þjónustan hófst í Vestmannaeyjum í ágúst og í Uppsveitum 11. nóvember.

Þjónustan er fyrir skjólstæðinga HSU 18 ára og eldri og hentar einföldum og afmörkuðum erindum, til dæmis kvefi og hálsbólgu, þvagfærasýkingum, útbrotum og endurnýjun lyfja. Hún er viðbót við heilsugæsluna en kemur ekki í hennar stað.

Þú skráir þig inn á fjarlaekningar.is með rafrænum skilríkjum, velur erindi og svarar stuttum spurningalista. Læknir svarar innan tveggja klukkustunda á opnunartíma, alla daga kl. 10–22. Þjónustan er þér að kostnaðarlausu.

Ef læknir biður þig um að taka sjálfspróf fæst það á heilsugæslunni á Hellu eða Hvolsvelli á opnunartíma og á völdum N1-stöðvum og í apótekum.

Í neyðartilfellum skal hringja í 112.

Deila fréttinni
Allar fréttir og umfjöllun